Bros - Gjafaver ehf

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Um Bros

Bræðurnir Friðrik og Jóhannes Larsen stofnuðu árið 1993 fyrirtækið Bros-boli sem sérhæfði sig í merkingum og sölu á bolum. Bros-bolir fengu strax mjög góð viðbrögð á markaðnum og hefur fyrirtækið verið í stöðugri sókn síðan. Úrvalið af vörum sem Bros býður upp á hefur aukist gríðarlega og þjónustan orðin mjög fjölbreytt.

Bros er nú orðið alhliða markaðsfyrirtæki eftir að hafa sameinast gjafavörufyrirtækinu Gjafaveri og auglýsingastofunni Kaldaljósi. Samhliða þessum sameiningum hefur fyrirtækið flutt í nýtt og glæsilegt hús við Norðlingabraut 14 í Reykjavík sem blasir við öllum á leið um Suðurlandsveg.

GÆÐAVOTTUN
Árið 2006 fékk Bros gæðavottun samkvæmt ISO 9001:2000 staðlinum en vottorðið nær yfir alla starfsemi fyrirtækisins. Þessi vottun er mikil viðurkenning á því metnaðarfulla starfi sem unnið er í fyrirtækinu og er Bros fyrst fyrirtækja á sínu sviði til að fá slíka vottun.

FRAMTÍÐARSÝN
Það er markmið Bross að vera ávallt leiðandi fyrirtæki á sviði markaðssetningar og ímyndaruppbyggingar fyrirtækja. Við ætlum að styrkja enn frekar grunngildi fyrirtækisins sem eru virðing og samvinna við viðskiptavini – og heiðarleiki, fagmennska og metnaður starfsfólks. Við munum ávallt leitast við að bjóða viðskiptavinum okkar auglýsinga- og gjafavörur frá viðurkenndustu birgjum heims á því sviði.

STAÐSETNING
Bros er til húsa við Norðlingabraut 14 í Reykjavík. Húsið er til móts við Olís við Suðurlandsveg, rétt ofan við Rauðavatn.

 

 

 

 
Borði

Fréttir

MAÍ TILBOÐ
Þriðjudagur, 11. maí 2010
SKJÓLUR Þægilegir höfuðklútar – eða svokallaðar...
Nánar...
TILBOÐ Á USB MINNISLYKLUM
Föstudagur, 09. apríl 2010

Nánar...
HUMMEL 2010
Laugardagur, 06. mars 2010
Hummel International hefur gefið út vörulista sinn fyrir ári...
Nánar...
SKÓLATILBOÐ 2009
Miðvikudagur, 09. september 2009
Reynslan hefur kennt okkur síðustu árin að fatnaður frá Frui...
Nánar...
HK, BROS OG HUMMEL
Miðvikudagur, 09. september 2009
Félögin 3 hafa undirritað samning þess efnis að Bros sér HK...
Nánar...

Vinsælar vörur

Dömubolur, aðsniðinn
Dömubolur, aðsniðinn

Prjónahúfa
Prjónahúfa

Derhúfa
Derhúfa

Stálpenni, Svartur
Stálpenni, Svartur

Herrajakki "Softshell"
Herrajakki

Bolur "Value Weight"
Bolur

Fánastöng 6 m
Fánastöng 6 m

Blöðrur, sérmerktar
Blöðrur, sérmerktar