Félögin 3 hafa undirritað samning þess efnis að Bros sér HK fyrir Hummel búningum næstu 4 árin. Þessi samningur er okkur í Brosi mikið fagnaðarefni. Undanfarin 10 ár höfum við þjónustað HK með merkingar og göngum nú enn lengra þar sem merkið okkar fær að prýða búninga félagsins og HK vörur verða seldar til einstaklinga í verslun okkar að Norðlingabraut 14 í Norðlingaholtinu.
Meðfylgjandi mynd er frá undirskrift samningsins. Á henni er frá vinstri talið Jóhannes Larsen framkvæmdastjóri Bross, Sigurjón Sigurðsson formaður HK og Ævar Sveinsson frá Hummel International.












